Rannsóknarmiðstöð um stefnu og samkeppnishæfni

Rannsóknamiðstöð um stefnu og samkeppnishæfni (Center of Strategy and Competitiveness - CSC) er vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs á sviði stefnumiðaðrar stjórnunar og samkeppnishæfni í víðum skilningi. Innan CSC eru stundaðar rannsóknir í sterkum tengslum við atvinnu- og þjóðlíf, unnin þjónustuverkefni á sviðinu auk þess að staðið er fyrir viðburðum sem varða stefnu og samkeppnishæfni.

Hlutverk rannsóknamiðstöðvarinnar er að:

  • Stunda rannsóknir á sviði stefnumiðaðrar stjórnunar og samkeppnishæfni í sterkum tengslum við atvinnu-og þjóðlíf og kynna þær
  • Vera bakland kennslu í stefnumiðaðri stjórnun og samkeppnishæfni og eiga þátt í þjálfun meistara- og doktorsnema í rannsóknum á sviðinu
  • Byggja upp tengsl og efla samstarf við innlenda og erlenda rannsóknaraðila á sviði stefnu og samkeppnishæfni
  • Vinna þjónustuverkefni á sviði stefnu og samkeppnishæfni
  • Gangast fyrir atburðum sem varða stefnu og samkeppnishæfni
Image
""

Forsvarsmaður

Mynd af Runólfur S Steinþórsson Runólfur S Steinþórsson Prófessor 5254557 rsmari [hjá] hi.is https://iris.rais.is/is/persons/6f7f7818-2f7a-4690-b8a6-d4e70804ea23 Viðskiptafræðideild

Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands skipar fimm manna stjórn rannsóknamiðstöðvarinnar til þriggja ára í senn og tveir fulltrúar koma frá atvinnu- og þjóðlífi.

Stjórn rannsóknamiðstöðvarinnar skipa:

  • Runólfur Smári Steinþórsson prófessor (formaður) 
  • Gylfi Magnússon dósent
  • Hákon Gunnarsson framkvæmdastjóri Gekon
  • Svava Bjarnadóttir fjármálastjóri Mannvits

Rannsóknarmiðstöð stefnu og samkeppnishæfni er þátttakandi í verkefni ríkisstjórnar Íslands, 20/20 Sóknaráætlun.

Verkefninu er ætlað að draga fram styrkleika og sóknarfæri lands og þjóðar og gera tillögur og áætlanir á grunni þeirra.

Móta á áherslur sem tryggja að Ísland verði eitt af 10 samkeppnishæfustu löndum heims árið 2020.

INNFORM stendur fyrir Innovative Forms of Organizing. Um er að ræða alþjóðlega rannsókn á þróun í skipulagi fyrirtækja, stefnu þeirra og starfsáherslum sem unnin var frá University of Warwick undir forystu dr. Andrew Pettigrew, sem nú starfar sem prófessor og deildarforseti Viðskiptaháskólans við University of Bath.

Að rannsókninni kom fjöldi fræðimanna frá ýmsum löndum.

Andrew Pettigrew hefur gefið leyfi fyrir því að rannsóknarsniðið og INNFORM spurningakönnunin sé notuð hér á landi og verkefnið miðar að því afla þekkingar á þróun fyrirtækja á Íslandi og setja þá þekkingu í samhengi við niðurstöður rannsóknanna erlendis.

Að rannsókninni vinna:

  • Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor
  • Einar Svansson
  • Hilmar Sigurbjörnsson

"Stefna í raun og veru" stendur fyrir ákveðinn samnefnara og tiltekna áherslu í rannsóknum á stjórnun og stefnumótun ("Strategy as Practice") sem er að ryðja sér til rúms.

Þessi áhersla á vaxandi fylgi að fagna í Evrópu og á Norðurlöndunum og er fyrir marga rannsakendur eins konar birting eða tilurð á samhengi fyrir rannsóknir þeirra hin síðari ár.

Rannsóknarverkefnið "stefna í raun og veru" miðar að því að gera fjölbreyttar og víðtækar raunrannsóknir á stjórnunarháttum, skipulagi og stefnumiðaðri stjórnun fyrirtækja og stofnana hér á Íslandi. Jafnframt er ætlunin að vinna úr raunrannsóknunum framlag til fræðanna um stefnumiðaða stjórnun.

Með rannsóknarverkefninu er einnig ætlunin að taka virkan þátt í því alþjóðlega fræðasamfélagi sem er um ‘stefnu í raun og veru'.

Að rannsóknarverkefninu vinna:

  • Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor
  • Einar Svansson